Friday, February 21, 2003

Ég var að spá, svona gamalt fólk (yfir 75 eða eitthvað) þegar það opnar augun á morgnana, ætli það hugsi með sér "yyyyeeeeessss, ég er enn á lífi." og þá er aðaláhyggjuefni kvöldsins áður lokið??

Annars er það af afa mínum að frétta að ég var í mat hjá þeim í gær (hrossabjúgu og uppstúfur með grænum baunum(amma setur sko baunirnar í uppstúfinn)) og hann er að hlusta á dánarfregnir og jarðarfarir í útvarpinu af mikilli athygli, kinkar kolli við og við (það þýðir að hann þekkti viðkomandi eitthvað) svo heyrir hann að einhver Sigríður frá einhverri afdalasveit var að deyja og þá muldrar hann: "æ, er hún farin blessunin" svo stendur hann upp, labbar inn á skrifstofu og kemur fram með gsm símann sinn og byrjar að fikta við hann. Ég spyr svona hvort hann sé nokkuð að setja jarðarförina í dagbókina á símanum. Hann svarar hvumsa: "Er það nú hægt líka, ég var nú bara að eyða símanúmerinu úr símaskránni" Ég missti andlitið, hann lét eins og ekkert væri sjálfsagðara, svo fór hann og tilkynnti ömmu, sem var að elda, um mannslátið og hún fór að velta því fyrir sér hvort jarðarförin væri ekki á sama tíma og hún væri að fara í lagningu.

Það er ekki skrýtið að þetta gamla fólk er allt á gleðipillum!!!

Thursday, February 20, 2003

Gyðingar, hvað er málið með þá!!!

Ok, ég er svona soldið búinn að vera pæla í þessu með þessa blessuðu Gyðinga, bæði í Ísrael og annarsstaðar, þeir eru svo voða klárir, eiga fullt af peningum í USA og svona. Þessum amerísku Gyðingum að kenna að BNA menn þora ekki að gera neitt til að stugga þeim útúr Palestínu, ég hélt því að Gyðingar væru rosalega klárir.
En svo fór ég að hugsa aðeins, fór að rifja upp fermingarfræðslu tímana hjá honum séra Braga hérna í gamla daga þegar hann lét okkur eyða 4 vikum í að horfa á myndina um Móses að leiða Gyðingana til fyrirheitna landsins (Ísraels) frá vondu faraóunum í Egyptalandi.
Fólk sem hóf ferðina sem börn, voru orðin farlama gamalmenni þegar þau loksins komu þangað.
Ég spáði náttúrulega ekkert í þetta þá, hélt bara að þetta hefði verið svona rosalega langt sem þau voru að fara. En núna er ég aðeins sleipari í landafræðinni og vissi að það er ekkert rosalega langt á milli egyptalands og ísraels.
Ég tjekkaði á landakortinu, og jú það stemmdi, þetta eru einhverjir 600 kílometrar á landi. Hvernig í ósköpunum stóð á því að það tók Gyðingana 46 ár (www.gamlatestamentid.is) að labba þessa leið, ég meina Reyni Pétri dugaði eitt sumar til að labba hringinn í kringum Ísland og hann er þroskaheftur!!!
Þetta er mér með öllu óskiljanlegt, ég meina það var allt þeim í hag. Egyptarnar á eftir þeim á svona hestakerrum hálfa leiðina og svo náttúrulega styttu þeir sér leið í gegnum rauða hafið og allt.
Reyndar þá töfuðst þeir soldið hjá Jeríkó, vegna þess að þeir nenntu ekki að ráðast á þá, svo þeir tjölduðu bara fyrir utan og biðu eftir því að borgin hryndi niður af sjálfu sér, en það skiptir ekki máli, þessi ferð á ekki að taka nema nokkra daga. (mér tókst blindfullum að komast alla leið að baulu í borgarfirði á einni nóttu)
Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta, ég meina hvað segir það um okkur ef svona vitleysingar (Gyðingar) eru að meika það miklu betur en við hin??
Hér er brot úr ljóði sem ég fann í ljóðabókinni hans Gústa


Uppáferðir
Alltaf máttu vita að víst
ég vil þig uppá fara,
og vittu það ég segðist síst
sæðið vera að spara!

Já ef að þarft nú fylling fá
fljótt á milli lappa
þig skal ég leggjast ofan á
og í þig sæði stappa.

Svo leggstu bara ljúfa mín
og lát mig völdin taka.
Þá mun verða vina þín
vot og full af raka.

Alltaf er gamla góða íslenska klámið jafn skemmtilegt, það voru svona hlutir sem gáfu þeim Gunnari og Njáli standpínu þegar þeir voru í forleiknum í holinu á Bergþórshvoli hérna forðum.
Mig langar að segja ykkur aðeins frá afmælisdeginum mínum, þið munið hvað Jón Gnarr talaði um að hann ætti ömurlegan afmælisdag, 2. Janúar, ég held því fram að minn sé verri - 20. apríl. Það hljómar sakleysilega er það ekki? ............ Ég skal útskýra afhverju hann er svona ömurlegur - þannig er að ég fæddist á páskadag (þ.e. daginn sem Jesú reis upp frá dauðum) , það væri svosem gott og blessað ef þetta hefði ekki líka verið afmælisdagur Adolfs Hitlers (ef þið hafið velt því fyrir ykkur hvenær Anti-Kristur fæddist þá held ég að þetta sé fínn dagur fyrir það) sem dæmi þá fór mamma mín til spákonu einusinni og hún fór að hágrenja þegar mamma sagði henni hvenær ég hefði fæðst.
Jæja, ég er ekki búinn þennan dag (20. apríl) þá voru Columbina morðin framin í Bandaríkjunum þannig að þegar ég opna blöðin á afmælinu mínu þá er ég yfirleitt minntur á það hvað Hitler vinur minn drap marga og svo á þessi columbina morð.
20. apríl er líka betur þekktur sem 4/20 eða aljóðlegur dagur hassreykinga, þennan dag fá allir sér semsagt í haus og þetta hefur valdið því undanfarin ár að ef ég hef ekki viljað hafa íbúðina fulla af flissandi hálfvitum á afmælinu mínu hef ég þurft að halda afmælið mitt á öðrum degi en afmælinu mínu. Einu afmælisgjafirnar sem ég fæ eru líka símtöl þar sem mér eru boðnir 1-2 smókar, æði alveg.
Þegar ég var yngri þá gerðist það líka 3-4 sinnum að sumardagurinn fyrsti var á afmælinu mínu, þá kom enginn í afmælið mitt!
Svo er þetta líka afmælisdagaur skátafélagsins Vífils í Garðabæ, er ekki alveg búinn að finna út hvað það á að þýða!
Nú er ég próflaus, þ.e. má ekki keyra bifreið. Ég var samt að spá, ætli ég megi keyra kassabíl? Ég mátti keyra kassabíl þegar ég var 7 ára þannig að ég hlýt að mega það núna. Þá spyr ég áfram, hversu stór má kassabílinn vera, eru einhver lög til um það hversu stórir kassabílar mega vera?? Ef ég myndi t.d. búa til kassabíl sem væri jafnstór og venjulegur fólksbíll, mætti ég keyra hann? Eða er ég þá kominn framyfir löglega kassabílastærð? Ef einhver veit þetta þá langar mig mikið til að vita þetta?
Hvernig stendur á því að ef að maður prumpar duglega þá þarf maður stundum að færa sig vegna fýlunnar en ef maður sest á klósettið með bullandi niðurgang þá er lyktin ekkert að angra mann???

Wednesday, February 19, 2003

Hversu oft hefur maður ekki heyrt frá stelpum að strákar séu svo óþroskaðir - "ohh, þið eruð svo miklir smákrakkar" Er þá oft vísað til þess þegar við erum að kýla hvorn annan og svo framvegis.
Þessu er ég ósammála mér finnst að þetta beri þess vott meira en nokkuð annað hversu mörgum ljósárum við erum á undan kvenmönnum í þroska.
Ég skal útskýra þetta fyrir ykkur, ég skal taka 2 dæmi
1) Stelpa ríður kærasta bestu vinkonu sinnar, kærastan kemst að þessu og við tekur margra mánaða andlegt ofbeldi milli þessara tveggja vinkvenna og þegar því lýkur (ef því lýkur einhvern tíma) þá liggja fjölmargir í valnum, hver vinkonan á fætur annari búinn að fá andlegt taugaáfall og áralöng vináttubönd margara kvenna eru eyðilögð að eilífu
2) Strákur ríður kærustu besta vinar síns, kærastinn kemst að þessu, á næsta fyllerí þá lemur kærastinn vin sinn (báðir ná nokkrum höggum, en sá sem veit uppá sig sökina hleypir oft á sig aðeins fleiri höggum) á næsta fylleríi þar sem þessir 2 hittast þá er stirt á milli á meðan fyrstu bjórarnir renna niður en á svona 4-5 bjór þá byrja þeir á smá trúnó og venjulega enda þessar samræður með faðmlagi og orðunum "hvernig var svo að ríða helvítis druslunni mar, hehe"

Ef við myndum spyrja dr. Phil hvorri leiðinni ætli hann yrði hrifinari af??

Persónulega myndi ég velja seinni leiðina, enda er það margsannað að við gerum allt betur en þið stelpur.

Við erum bestu kokkarnir
Bestu fatahönnuðirnir
Við hönnum á ykkur snyrtivörunar
Við erum bestu hárgreiðslumennirnir
við eurm meira að segja betri en þið í fimleikum

PS: Vissuð þið að eldavélar eru ennþá hannaðar þannig að þær henti kvenfólki betur en körlum
Ég og vinur minn sem erum báðir hangandi heima allan daginn höfum ákveðið að gerast nörd og ætlum að fara endurvekja hið stórskemmtilega íslenska spil Askur Yggdralsis, við ætlum að panta pizzur og drekka kók og búa okkur til asnalegan nördahlátur.
Þeir sem hafa áhuga á að vera með okkur vinsamlega sendið mér E-mail
Afhverju flýtir gamalt fólk sér aldrei, er enginn búinn að segja þeim að tíminn sé að renna út hjá þeim??
Bróðir minn var að finna notaðan smokk inní herberginu og heldur að ég hafi fengið mér að ríða (tíhí) en það sem hann veit ekki er að ég var bara að æfa mig í að setja á mig smokk og ákvað að rúnka mér í leiðinni og sleppa þannig við að þrífa eftir mig hvíta gullið (copyright Bragi)
Þá er þetta blogspot komið í lag aftur þannig að ég get tjáð mig