Saturday, November 30, 2002

Ok, ég er búinn að fylla inn í eyður gærkvöldsins. Ég drapst víst í sófanum hjá Braga, þar ældi ég yfir mig í svefni. Bragi reyndi að henda mér út, en það gekk hálfilla svo að hann barði mig svo að stórsér á mér. Ég skildi skóna mína eftir í garðinum hjá honum og fór ber að ofan heim. Þar virðist ég hafa sett egg í pott, ekki kveikt á hellunni og sett síðan debetkortið mitt inn í ísskáp.
mamma vakti mig í morgun til að fara í árlegan piparkökubakstur fjölskyldunnar, en vegna slælegs ástands líkama míns varð ekkert úr ferðinni.
Ég er núna heima hjá Braga og vonast til að endurtaka ástand gærkvöldsins.
Ég titra og skelf af þynnku. Ég kom heim í engu nema leðurjakkanum af félaga mínum, held að ég hafi ælt í rúmið hjá honum (eða einhverjum) Mamma vakti mig í morgun til að fara með í piparkökubakstur með fjölskyldunni. Ég sagði nei. ég get ekki skrifað meira núna, ég sé ekki lyklaborðið

Friday, November 29, 2002

Þetta var erfið göngufeð en það hafðist, niðrí smáralind, kaupa bjór, svo á kentucky að fá sér að éta. Loksins er allt tilbúið fyrir fylleríið í kvöld.
Mikið er bjór viðbjóðslega góður!!
JESSS, loksins kominn föstudagur, nú byrjar lífið aftur eftir að hafa legið í dvala alla vikuna. Nú er bara að kaupa sér vín, rakvél og sjampó, fara jafnvel og ná sér í föt í hreinsun. Eða bara kaupa fullt af v´ni og drekka þangað til ég drepst!!

Thursday, November 28, 2002

Vei, ég fékk loksins comment frá einhverjum.
Mig langar að þakka sjallanum hlý orð í minn garð.
Ég dáist alltaf að því þegar fólk þorir að koma svona fram undir nafni og segja sína skoðun á mönnum og málefnum.
Mig langar samt að biðja sjallann að reyna finna prikið sem virðst vera fast upp í rassgatinu á honum, þetta gæti háð honum soldið í mannlegum samskiptum, tala ekki um hvað það hlýtur að vera óþægilget að sitja á þessu , fyrst að hann eyðir öllum deginum í að sitja á rassgatinu fyrir framan tölvuna og rúnka sér yfir því hvað að hann er með fjölbreyttan orðaforða!
Anskotinn, maður er búinn að hafa fyrir því að vera hita vatn og búa til mokka kaffi, svo sest ég fyrir framan tölvuna, fæ mér sígó og það fyrsta sem ég geri er að aska í kaffibollann!
Mig langar að deila svolitlu með ykkur.
Þannig er að þegar ég var yngri þá var ég rosalega feitur og átti ekkert rosalega marga vini heldur. Helsta ástæðan fyrir því held ég reyndar að sé sú að ég átti við smá þvagfæravandamál að stríða á þeim tíma og það var þess valdandi að það var frekar vond lykt af mér, en ég er sem betur fer að mestu laus við það í dag.
En þetta varð semsagt þess valdandi að ég eyddi stærstum hluta af mínum grunnskólaárum einn inni á bókasafni að lesa.
Ég var ofurnörd og ein eftirminnilegasta minningin mín frá þessum tíma var þegar ég fékk að fara yfir landafræðipróf sem bekkurinn minn tók í 8. bekk.
Á þessum tíma var ég alveg búinn að gera mér það ljóst að einu kynferðislegu samskiptin sem ég myndi nokkurn tíma eiga við einhvern af hinu kyninu yrðu í gegnum Ircið og þar að auki áttum ég og hægri hendin á mér í leynilegu ástarsambandi við Pamelu Anderson og fullnægði það samband nokkunr veginn mínum kynlífsþörfum.

En svo gerðist það eitt laugardagskvöldið þegar ég lá einn upp í rúmi að horfa á sjónvarpið og éta nammi að ég sá mynd með Tom Cruise sem heitir Cocktail og var um rosalega góða barþjóna.
Þar sem ég lá þarna hugsaði ég með mér, vá barþjónar hljóta að fá fullt að ríða maður, ef ég gæti bara reddað mér vinnu við það þá væri ég set.
Á þeim tíma vann ég fyrir mér í dósamóttökunni hjá Hagkaup, þeir vildu ekki láta mig vinna nálægt mat.

ég var 17 ára og ákvað að nú skyldi verða breyting á.
Ég vissi samt ekki alveg hvert ég ætti að snúa mér til að redda mér svona vinnu, svo að ég hringdi í frænda minn sem hafði unnið sem barþjónn og spurði hann hvað ég ætti að gera.
Hann sagði að þetta væri ekkert mál, ég þyrfti bara að eiga 2000 kall, ég sagðist eiga hann.
Eftir 10 min sat ég inn í bíl með honum og spurði hann hvað ég væri að fara gera.
“Þú ert að fara að kaupa þér líter af landa, bland og pakka af winston lights”
Ég var eðlilega soldið hissa svo ég spurði tilhvers.
Hann sagði mér það að í 1.) þá yrði ég að verða alkahólisti til að geta orðið barþjónn og í 2.) lagi þyrfti ég að hætta að kaupa namma og þar kæmu sígaretturnar inní.
Ég hugsaði með mér að líf mitt gæti varla versnað mikið úr þessu svo að ég skellti mér á mitt fyrsta fyllerí.
Það er skemmst frá því að segja að nákvæmlega ári seinna var ég orðinn forfallinn alkahólisti, reykti 2 pakk á dag og var búinn að missa 45 kíló og var meira að segja búinn að eignast nokkra vini, en mikilvægast af öllu var þó það að ég var kominn með vinnu sem barþjónn á Hótel Íslandi.

En til að gera langa sögu stutta þá er ég núna búinn að vinna sem barþjónn í nokkur ár, ég er ennþá hreinn sveinn og það næsta sem ég komst því að missa hann var þegar blindfullur skipstjóri frá Bíldudal bauð mér 20 þúsund kall fyrir að koma með sér heim.
Pamela Anderson er komin með 2 börn og búin að minnka brjóstinn svo að hún er alveg hætt að virka fyrir mig.
Þannig að núna er ég kominn að öðrum tímapunkti í mínu lífi.
Ég hef ákveðið að hætta sem barþjónn, vinur minn búinn að redda mér vinnu sem háseti á bát frá Bíldudal og svo ætla ég bara að kaupa mé mellur þegar ég er í landi.
Ok, var að vakna. Náði að sofa aðeins í nótt.
Var að tala við félaga minn, hann er að fara á atvinnuleysisnámskeið svo hann geti fengið bætur. ÉG mundi gera það sama ef ég nennti því - sem ég geri engan veginn.
2752 krónur á dag - virka daga, það eru öll ósköpin, ekki er ætlast til þess að fólk lifi á því. Ég eyddi ekki nema 45 þús kalli í djamm síðustu helgi - og ég fór ekki einusinni í bæinn.
Það er reyndar lygi, fór með taxa niður á Hlemm tli að hitta stelpu sem ég kynntist á Private.is (fyrsta skipti, ég lofa) hún reyndist vera tannlaus, lítil, feit og með gleraugu og með henni var stelpa sem var í 9. bekk. Hummm, hvað gera bændur þá, jú ég var svo drullu fullur að ég tók þær með mér í party, lofaði að koma þeim heim aftur og alles. Þegar ég kom í partyið var mér bent á hversu ógeðslegt þetta væri svo ég ignoraði þær bara og að lokum tóku þær víst leigubíl heim og létu pabba borga, svona getur maður nú verið indæll!

Wednesday, November 27, 2002

YYYEEEEESSSSSSS, ég er enn á lífi, reyndar kemur það mér ekkert á óvart, er ekkert farinn að sofa ennþá. Ég er algjörlega búinn að snúa sólarhringnum við núna, eins gott að ég fari nú ekki að fá vinnu á næstunni, ekki séns að ég gæti mætt reglulega!
Það er búið að þrífa alla íbúðina og ég er búinn að vera dunda mér við það í morgun að skoða allar spólurnar sem ég hef tekið upp og númera þær og setja svo upp í exel hvað er á hverri spólu (eins og fólk kannski sér þá er ég ekki vanur að vera athafnalaus)

K. Karlson ehf. var búið að lofa mér James Bond sýningu í kvöld þar sem boðið yrði upp á frítt vín og mat, en þeir fóru víst í fýlu afþví þeir fengu ekki fyrstu sýninguna og hættu við, ég er brjálaður!

Fer að styttast í útborgunardag sem betur fer, þá getur maður kannski farið að lifa eins og manneskja aftur!

Hvað er málið með Sverris Stormsker, var á stöð 2 í morgun að dásama Ástþór Magnússon, segir það ekki allt sem segja þarf um Ása þegar það eru rugludallar eins og Sverrir að svara fyrir hann!!

Ætla að reyna leggja mig aðeins, góða nótt!!

By the way, hvað er í gangi með Tilveruna
Núna er ég að fara að sofa. En ég var að spá, svona gamalt fólk (yfir 75 eða eitthvað) þegar það opnar augun á morgnana, ætli það hugsi með sér "yyyyeeeeessss, ég er enn á lífi." og þá er aðaláhyggjuefni kvöldsins áður lokið??

Annars er það af afa mínum að frétta að ég var í mat hjá þeim áðan (hrossabjúgu og uppstúfur með grænum baunum(amma setur sko baunirnar í uppstúfinn)) og hann er að hlusta á dánarfregnir og jarðarfarir í útvarpinu af mikilli athygli, kinkar kolli við og við (það þýðir að hann þekkti viðkomandi eitthvað) svo heyrir hann að einhver Sigríður frá einhverri afdalasveit var að deyja og þá muldrar hann: "æ, er hún farin blessunin" svo stendur hann upp, labbar inn á skrifstofu og kemur fram með gsm símann sinn og byrjar að fikta við hann. ég spyr svona hvort hann sé nokkuð að setja jarðarförina í dagbókina á símanum. Hann svarar hvumsa: "Er það nú hægt líka, ég var nú bara að eyða símanúmerinu úr símaskránni" Ég missti andlitið, hann lét eins og ekkert væri sjálfsagðara, svo fór hann og tilkynnti ömmu, sem var að elda, um mannslátið og hún fór að velta því fyrir sér hvort jarðarförin væri ekki á sama tíma og hún væri að fara í lagningu.

Ég verð nú bara að segja að mér finnst ekki skrýtið að allt gamalt fólk skuli vera á gleðipillum!!

PS: Ég held að ég sé að verða ástfangin af Katrínu hún verður sætari í hvert sinn sem ég skoða myndir af henni
Ok, hvað er málið, hvorki tilveran eða Beta biatch búinn að setja neitt inn í dag, hvað er málið eiginlega. Þetta með tilveruna er búið að fara mikið í taugarnar á mér í dag, verð að tjekka á 5 min fresti

Tuesday, November 26, 2002

Ég var að horfa á Ísland í dag og þar var tugthúslimurinn Ástþór Magnússon mættur, nýkominn af litla hrauni. Veslings kallinn upplýsti okkur um það að það hefði verið draumsýn sem átti stærstan þátt í þessum bréfaskriftum hans til fjölmiðlanna. Ég held nú bara að þessi maður sem og þessi samtök hans séu löngu komin fram yfir síðasta söludag (í bókstaflegri merkingu, sbr. Friður 2000, er ekki komið árið 2002 núna) ef hann væri mjólkurferna þá væri hann löngu orðinn súr og kominn í ruslakörfuna. Enda sýndi það sig kannski best þegar hann upplýsti okkur um það að hann hafði skitið á gólfið í klefanum sínum á litla hrauni.
Er það ekki soldið flott að fyrrum forsetaframbjóðandi skildi þurfa eyða einni nótt í eigin skít og hlandi í 6 fermetra klefa
Ok, ég var að finna gamlan launaseðill frá íslenskri erfðagreiningu!!! Damn hvernig í anskotanum datt mér í hug að hætta þar til að fara vinna aftur sem barþjónn. Hvurslags hálfviti gerir svoleiðis lagað, ég bara spyr?
Væri ekkert á móti Því að vera fá útborgað frá þeim núna um mánaðarmótin
Ok, þar sem ég er atvinnulaus, þá er mamma núna að þræla mér út í jólahreingerningum, ég var rifinn uppúr rúminu klukkan 9 í morgun til að fara með eitthvað drals á sorpu!!
Ég er núna að flokka skóladótið mitt sem var búið að safnast upp í 6 ár. Fann m.a. silfur blekpennasett uppá 15 000 krónur sem ég fékk í fermingjargjöf (já það er til sölu ef ég fæ eins og kassa af bjór fyrir það)
En mikið rosalega er maður nú búinn að skrifa mikið þessi ár sem maður er búinn að eyða í skóla, þetta eru mörg þúsund blaðsíður!!
Er líka búinn að finna fullt af tölvuleikjum sem ég var búinn að týna.
Fann m.a. allt gamla nintendo leikjasafnið mitt, nú er bara að finna tölvuna sjálfa og þá hef ég eitthvað að gera næstu daga.
Gyðingar, hvað er málið með þá!!!

Ok, ég er svona soldið búinn að vera pæla í þessu með þessa blessuðu Gyðinga, bæði í Ísrael og annarsstaðar, þeir eru svo voða klárir, eiga fullt af peningum í USA og svona. Þessum amerísku Gyðingum að kenna að BNA menn þora ekki að gera neitt til að stugga þeim útúr Palestínu, ég hélt því að Gyðingar væru rosalega klárir.
En svo fór ég að hugsa aðeins, fór að rifja upp fermingarfræðslu tímana hjá honum séra Braga hérna í gamla daga þegar hann lét okkur eyða 4 vikum í að horfa á myndina um Móses að leiða Gyðingana til fyrirheitna landsins (Ísraels) frá vondu faraóunum í Egyptalandi.
Fólk sem hóf ferðina sem börn, voru orðin farlama gamalmenni þegar þau loksins komu þangað.
Ég spáði náttúrulega ekkert í þetta þá, hélt bara að þetta hefði verið svona rosalega langt sem þau voru að fara. En núna er ég aðeins sleipari í landafræðinni og vissi að það er ekkert rosalega langt á milli egyptalands og ísraels.
Ég tjekkaði á landakortinu, og jú það stemmdi, þetta eru einhverjir 600 kílometrar á landi. Hvernig í ósköpunum stóð á því að það tók Gyðingana 46 ár (www.gamlatestamentid.is) að labba þessa leið, ég meina Reyni Pétri dugaði eitt sumar til að labba hringinn í kringum Ísland og hann er þroskaheftur!!!
Þetta er mér með öllu óskiljanlegt, ég meina það var allt þeim í hag. Egyptarnar á eftir þeim á svona hestakerrum hálfa leiðina og svo náttúrulega styttu þeir sér leið í gegnum rauða hafið og allt.
Reyndar þá töfuðst þeir soldið hjá Jeríkó, vegna þess að þeir nenntu ekki að ráðast á þá, svo þeir tjölduðu bara fyrir utan og biðu eftir því að borgin hryndi niður af sjálfu sér, en það skiptir ekki máli, þessi ferð á ekki að taka nema nokkra daga. (mér tókst blindfullum að komast alla leið að baulu í borgarfirði á einni nóttu)
Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta, ég meina hvað segir það um okkur ef svona vitleysingar (Gyðingar) eru að meika það miklu betur en við hin??


Hér er brot úr ljóði sem ég fann í ljóðabókinni hans Gústa


Uppáferðir
Alltaf máttu vita að víst
ég vil þig uppá fara,
og vittu það ég segðist síst
sæðið vera að spara!

Já ef að þarft nú fylling fá
fljótt á milli lappa
þig skal ég leggjast ofan á
og í þig sæði stappa.

Svo leggstu bara ljúfa mín
og lát mig völdin taka.
Þá mun verða vina þín
vot og full af raka.

Alltaf er gamla góða íslenska klámið jafn skemmtilegt, það voru svona hlutir sem gáfu þeim Gunnari og Njáli standpínu þegar þeir voru í forleiknum í holinu á Bergþórshvoli hérna forðum.
Ég var að heyra soldið ógeðslegt, vissuð þið að ef þið deilið snakkpoka með félaga ykkar eru 20% líkur á að þið borðið úr honum saurleifar?? Það er ógeðslegt.
Allavega, ég ætla að reyna rúnka mér eitthvað svo ég nái kannski að sofna á skikkanlegum tíma.
Ég var að spá afhverju finnur maður geðveikt vonda fýlu þegar maður prumpar og svoleiðis en svo getur maður setið á klósettinu og drullað úr sér innyflunum og lyktin er ekkert að angra mann, ætli það slökkni bara sjálfkrafa á lyktarskyninu á meðan maður er að skíta??
Ég er semsagt atvinnulaus núna, var að hætta í vinnunni minni og nenni ekki að leita mér að nýrri vinnu. Hangi bara heima allan daginn og geri ekki neitt, djöfull er það leiðinlegt!!
Mamma var svo að þvo fötin mín í gær og fann dóm sem mér var birtur í síðustu viku. 220 000 krónu sekt fyrir að keyra fullur og próflaus. Bréfið var reyndar búið að fara eina umferð í þvottavélinni þegar hún las það og það sem hún skildi var að ég hefði verið að keyra á undan lögreglunni og reynt að flýja og endað upp á umferðareyju!!
Sem var ekki alveg rétt, sá lögguna og keyrði upp á grasblett sem var í vegkantinum, jæja þýðir ekki að gráta bjössa bollu heldur panta sér bara pizzu eða eitthvað í þá áttina.

Hún eyðilagði í kjölfarið nýju laser músina á hausnum á mér svo að ég þarf að nota einhverja viðbjóðslega kúlumús, þá á að banna svoleiðis morðtæki (þ.e. kúlumýs, ég er að missa vitið)
En núna er ég semsagt með tvær kúlur á hausnum, eina við hvort gagnauga, ég lýt út eins og karakter úr Star Trek

Sunday, November 24, 2002

Ég var að drullast uppúr rúminu, djöfull var þetta erfið helgi. Partý á föstudaginn, brennivín, Whisky bjór og allur pakkinn. Símanum mínum var stolið og besti vinur minn henti hausnum á mér utan í arinn, er kominn með þessa fínu mandarínu sem stendur útúr hausnum á mér.
Ætlaði líka bara að fara í partý á laugardaginn en því var nú anskotans verr og miður að ég endaði niður í bæ.

Borgaði fokking 1000 kall til að fara inn á Astro, ég var búinn að lofa mér því að fara aldrei aftur inn á þann viðbjóðslega stað, flæktist svo inn á Tres Locos (það var fínt, fylgdi staup með öllum bjór), Celtic Cross og svo á Hverfisbarinn, endaði þetta ömurlega kvöld á því að fara inn á Solon þar sem vinur minn móðgaði fyrrverndi hans litla bróður með því að spurja hana hvernig í ósköpunum hún hefði getað riðið svona viðbjóði.
Hún fokkaði honum og hellti yfir hann drykknum mínum, sem var ekki gaman!!